Kishore Kumar Hits

Carpe Noctem - Og hofið fylltist af reyk lyrics

Artist: Carpe Noctem

album: Vitrun


Handan himinjaðars er musteri
þar sem skorpnar varir kyrja illa sálma
Steinar þess halla, riða til falls,
En grunnur þess er klettur
Það er holdið sem reisti það
Og andinn sem byggir það
Nafn þitt er rist þar máðum stöfum,
Eitt orð í óslitinni þulu
Vitnaðu um fegurð og andstyggð!
Vitnaðu um mátt þess og óvild!
Og hofið fylltist af reyk
Dyrnar standa öllum opnar
En fáir eiga sér afturkvæmt
Brotnar bjöllur klingja útfarartón
Hinsta messan endar aldrei
Vakið og biðjið!
Reykið og fórnið!
Hring eftir hring,
Sálm eftir sálm
Í leiðslu tölum við klofnum tungum
Hlýddu, og láttu orðin fylla vit þín
Heyrðu hofið syngja
Drekkjandi bölbænir
Dýrðin er okkur fjarri,
Hulin af dökkum reyk,
Við nemum aðeins brotna geisla
Sem blinda og veita sýn
Líttu undan og lofaðu
Líttu innar og lofaðu

Поcмотреть все песни артиста

Other albums by the artist

Similar artists