Kishore Kumar Hits

Carpe Noctem - Odium Somniferum lyrics

Artist: Carpe Noctem

album: In Terra Profugus


Iii. i. Hljóðs bið ég allar
óhelgar kindir,
Meiri og minni
Mögu Aurgelmis
Ii. Sá sem hefur eyra,
Hann heyri
Þeir sem ei hlusta
Skulu áfram leir vera
Iii. Frjáls
Frá prísund holdsins
Laus
úr búri hugans
Iv. Á brún heimsins
Er jafn langt til himins og heljar
Tómið sem slær bak rifjum þínum
Mun leiða þig að pyttnum mikla
V. Þú fellur niður frá jörðu!
Ég stend við svarta hliðið!
Vi. Frummyrkrið
Mun gleypa allt
Sem er og hefur verið
Vii. Það logar enn
í brjósti þér
þráir að brjótast út
Viii. Gakktu inn
í dimmt fjallið
Gakktu inn
í þrúgandi dýpið
Ix. Þú sem leitar
þú sem kvelst
Rita þú í bók það
Sem þú sérð
X. Ámáttleg sjón
ósvikin
ójarðnesk hljóð
Vekja upp óhug
Xi. Þungi fjallsins
Sligar þig
Ei bugast, ei brotna
Umberðu í nokkra stund
Xii. Phlegethon brennur
í æðum þínum
Lát blóðið lýsa þér leið
Xiii. Lof sé jörðinni og hafinu,
því djöfullinn er stiginn niður til oss
því hann veit, að hann hefur nauman tíma.
Xiv. Visita Interiora Tartaros Rectificando Invenies Occultum Lapidem

Поcмотреть все песни артиста

Other albums by the artist

Similar artists