Er við hittumst fyrst við vorum ung að árum ég sagði hæ en halló var þitt svar Lífsins þunga þanka fáa bárum En nýjar voru tilfinningarnar Bros gat hæglega orðið að tárum En við sem par, virði áhættunnar Dag eftir dag Dag eftir dag Dag eftir dag Hafði á þér augastað Dag eftir dag Dag eftir dag Dag eftir dag ég tók eitt skref þér að Við hugmyndina um okkur lengi gældi Var vandvirkur, fór varlega þér að Ég laumulega daðraði og lygilega pent þér hældi Hafði alltaf á þér augastað Að endingu ég loksins í þig nældi Lukkudísum þakka fyrir það