Í leit að hamingju allir sigla þyrftu Yfir dimmt og djúpt, yfir tímans kalda haf Léttist undir eins róður ef allir hirtu Minna um fáein spor út af braut því af Fortíð læra má Reisa framtíð á – Engin eftirsjá Bæði ég og þú Lifum hér og nú Tíminn gildra er, gæta þarftu að þér En þá sem lifa nú hann fær aldrei handsamað Hví að syrgja' og sjá eftir því sem út af ber? Snúðu öllu því þér í hag því af Ef í fortíðinni býrð Burt frá lífinu snýrð Farir þú langt fram úr þér þú gleymir því sem er Og þótt núið sé snúið ber þér og mér Núna að vera hér Og svo fer sem fer