Stundum er ég sterk, Og stundum get ég ekkert gert svo ég Sit og sakna og syrgi og sé Mikið eftir þér Stundum er ég leið, Stundum man ég ekkert hvað var að Spyr mig hvernig ég gat sært Allt sem var mér kært Stundum er ég stolt, Stundum er ég viss um hvernig fór Klappa mér á bakið mitt Hætti að hugsa um þitt Stundum er ég sár, ég velti stundum fyrir mér hvort þér Líði betur eða verr án mín eða með Stundum er ég góð, Stundum get ég samið ljóð um eitthvað annað en þig, Fléttað um það fallegt lag, Tókst það ekki' í dag