Þú ein ert mín, mín ást ei dvín Elskan trúðu mér, ég er alsæll með þér Loksins fann ég það, sem leitaði ég að Ást svo ung og hrein, úr augum þínum skein Þú ein. Þú ein Þú ein mig átt, jafnt dag sem nátt Því við erum eitt, ei neitt, þar um, fær breytt Mundu að ætíð er, ein í hjarta mér Þá ná mun aldrei nein, að negla á milli flein Þú ein. Þú ein Þegar greinir okkur á og erfiðleikar magnast þá Aldrei samt þú æðrast skalt, því ástin sigrar allt Hvað sem gerast kann, mín kæra, þér ég ann Mín lífsins braut er bein, björt og aðeins ein Þú ein. Þú ein. Þú ein