Í svarthvítri veröld þar sem ógnin sverfur að sálunum Og sólin nær ekki í gegn. Ég kveiki ljós Sem að leiðir mig Og gefur mér kjark. En myrkrið er svartast í húsasundum höfuðs míns þar sem hugsanir hræða mig. Ég bægi þeim frá Og held þéttingsfast í ljósglætuna. En þar sem rökkrið nær ekki Er hjarta mitt vakandi Og glóir eitt í grámanum. Sjáðu stjörnurnar þær fjara út úr augsýn okkar.