Undir heiðum himni Og undir sólinni Eins og fjöllin sit ég alltaf á sama staðnum En sem skriðjökull Á ég það til að taka mér Smá göngutúr En við og við Vil ég renna mér Sem árnar og fljótin út í vötnin Og stinga mér út í lónin Það er ég Það er ég Náttúran Það er ég Það er ég Náttúran Þar sem grasið grær Þar sem trén eru allstaðar Þar sem blómin vaxa mörg er mig að finna Í þrastarhreiðri Jafnt sem á hafsbotni Inn í skógi uppí lofti útum allt Því þar er ég Ég er hér og þar Á víð og dreif um óbyggðirnar Að bæta mig og breytast Það er ég Það er ég Náttúran Það er ég Það er ég Náttúran