Kishore Kumar Hits

Pascal Pinon - Sandur lyrics

Artist: Pascal Pinon

album: Pascal Pinon


Að vera einn út á engi
Með einum manni og einni kind
Að finna þyt í laufum
Að finna ferskan vind
ég er hér en þú ert þar
Og samtök væru synd
ó viltu hætta að níðast á mér
Með þinni orkulind.
Stundum er ég einmana
Og vil þá fara heim
á stjörnubjartri nóttu
ég horfi út í geim
Vorið er og vorið var
Alltaf á leiðinni
ó viltu hætta að segja mér
Frá fortíðinni.
Að lifa á þessu landi
það eru fríðindi
Hvers má maður gjalda
Fyrir þau hlunnindi?
Frumvarpið og andvarpið
Með öll sín blíðindi
ó viltu ekki hafa af mér
öll mín réttindi.
Hvar er heitt og hvar er kalt
En hvar er hvorki né?
Ég skrifaði á hend mína
Nú húðlit hvergi sé
ég hef unnið ég hef unnið
Hvenær fæ ég hlé?
ó viltu ekki drepa hann
Drepa hann E.T.

Поcмотреть все песни артиста

Other albums by the artist

Similar artists