Alein kom eg í kyrran skóg Um sumarkvöld Þráin laðaði, þögnin dró Um sumarkvöld En áin niðaði svefnljóð sín Er sveipað allt var í daggarlín Um sumarkvöld Máninn skein yfir skógarbrún Þá sumarnótt Á vatni glampaði geislarún Um sumarnótt Og stjörnur blikuðu blítt og rótt Á bláum feldi um þögla nótt Sumarnótt Hver bjarkarkróna var blaðafull Blaðafulll Í laufi titraði lýsigull Mánagull En álfabörnum var dillað dátt Þau drógu gullin sín fram þá nátt Skógargull