Sérhvern dag ég horfi út á hafið Hugsa um þig meðan sólin skín Nú ertu fjarri mér Mig langar aftur heim til þín Kalda ástin mín Í veikri von ég leita nú að þér Í köldum dimmum draum Um nætur Þín sakna um nætur Ég sakna þín um kalda vetrarnótt Sérhvert kvöld Ég syndi út á hafið Kalla á þig meðan máninn skín Nú ertu nærri mér Djúpið togar mig til þín Kalda ástin mín Í veikri von ég leita nú að þér Í köldum dimmum draum Um nætur Ég vaki um nætur Ég vaki einn um langa vetrarnótt Í votri gröf ég leita nú að þér Í köldum dimmum sæ Um nætur Ég þrái hjarta þitt Mér var ætlað að lifa, ætlað að þjást Þú lifir með mér mín eina kalda ást Í veikri von um nótt ég leita nú að þér Í djúpri, votri gröf Um nætur Ég þrái hjarta þitt Mér var ætlað að lifa, ætlað að þjást Þú lifir með mér mín eina kalda ást