Kishore Kumar Hits

Sprengjuhöllin - Þá hlupu hestar á skeið lyrics

Artist: Sprengjuhöllin

album: Tímarnir okkar


Fyrst komu paparnir með prik í hönd
Og pældu í guði en vildu ekki nema lönd
Svo sigldu þeir í burtu
Og sáust aldrei meir
Við sjáum þetta núna á menjum úr leir
Síðan sigldu hingað ýmsir útlagar
Sem allt í einu urðu frjálsir höfðingjar
Flestum þeirra tókst að fæðast upp á nýtt
Þeir ferðuðust um landið opið og vítt
Þá hlupu hestar á skeið, hlupu hestar á skeið
Yfir heiðarnar, yfir heiðarnar
Og á þeim riðu hetjur, hetjur
Eða svo er okkur sagt
Og ef þú skildir fá leið, skildir fá leið
Þá líttu í kringum þig, líttu í kringum þig
Og þú líður inn í veröld, veröld
Sem kynslóðir hafa kvatt
Að nokkrum öldum liðnum
Varð svo lítið stríð
Þá leiddu saman bændur við smávaxið mýr
Einn fékk stein í höfuðið og hreyfðist aldrei meir
það hefðu dáið fleiri en vopnin voru meyr
Samt var mikið skrifað og ort um þessa öld
því óskrifaðir bardagar skapa engin völd
Og þetta gildir núna og mun gilda um alla tíð
Og gleymið ekki að tíminn gerir grimmdina að dýrð
Þá hlupu hestar á skeið, hlupu hestar á skeið
Yfir heiðarnar, yfir heiðarnar
Og á þeim riðu hetjur, hetjur
Eða svo er okkur sagt
Og ef þú skildir fá leið, skildir fá leið
Þá líttu í kringum þig, líttu í kringum þig
Og þú líður inn í veröld, veröld
Sem kynslóðir hafa kvatt

Поcмотреть все песни артиста

Other albums by the artist

Similar artists