Kishore Kumar Hits

Eyjólfur Kristjánsson - Ég lifi í draumi lyrics

Artist: Eyjólfur Kristjánsson

album: Eyfi 50 ...ykkur syng ég mina söngva


Ég lifi í draumi, dregi hvergi mörkin
Dags og nætur, sveiflast aðeins ósjálfrátt.
Í hægum gangi, á fullt í fangi
Með að finna það sem oftast reynist öfug átt.
Það er líkt og ég sé laus úr öllum viðjum,
Lentur hringsólandi á vegi miðjum.
Ég lifi í draumi, dreg hvergi mörkin
Dags og nætur, sveiflast aðeins ósjálfrátt.
Ég lifi í tómi, tek engan þátt í
Trylltum dansi fólksins allt í kringum mig.
Aleinn á randi, veit að minn vandi
Er að vera þar sem enginn getur áttað sig.
Það er líkt og ég sé lagstur út í bili,
Leitandi að bát á réttum kili.
Ég lifi í tómi, tek engan þátt í
Trylltum dansi fólksins allt í kringum mig.
Ég lifi í veröld, veit ekki hvaðan
Vindar þjóta, en þeir fara framhjá mér.
Einskonar fangi á víðavangi
Eða varnalaus gegn því sem er á meðan er.
Það er líkt og ég sé lamaður af ótta,
Líf mitt rennur burt á hröðum flótta.
Ég lifi í veröld, veit ekki hvaðan
Vindar þjóta, en þeir fara framhjá mér.

Поcмотреть все песни артиста

Other albums by the artist

Similar artists