Litfríð og ljóshærð Og létt undir brún Handsmá og híreygð Og heitir Sigrún Viska með vexti Æ vaxi þér hjá Veraldar vélráð Ei vinni þig á Svíkur hún seggi Og svæfir við glaum Óvörum ýtir Í örlagastraum Veikur er vilji Og veik eru börn Alvaldur, alvaldur Æ sé þeim vörn Sofðu mín Sigrún Og sofðu nú rótt Guð faðir gefi Góða þér nótt