Ljósin á ströndu skína skær Skipið það færist nær og nær Og þessi sjóferð endi fær. Ég búinn er að puða og púla Pokann að hífa og dekkin spúla. Reifur ég stend í stafni hér Strax og að landi komið er Bý ég mig upp og burt ég fer. Ég fer í fríið. Ég fer í fríið. Ég fer í fríið. Ég fer í fríið. Ég fer í fríið. Ég fer í fríið. Óþolinmæðin í mér býr, áður en rennur dagur nýr Skal ég mér eiga ævintýr. Ég fer á ball og drekk og dansa, Mér dembi út í stelpufansa. Hafgúuvæl og vindagnótt, Voru mín tónlist hverja nótt Nú skal það breytast býsna fljótt. Ég fer í fríið. Ég fer í fríið. Ég fer í fríið. Ég fer í fríið. Ég fer í fríið. Ég fer í fríið. Ljósin á ströndu skína skær Skipið það færist nær og nær Og mér í brjósti hugur hlær. Allt sem ég þrái upp þau fylla Og mína löngun magna og trylla. Lengi ég beið og loksins er Lagt þetta allt að fótum mér ég má þess njóta nú og hér. Ég fer í fríið. Ég fer í fríið. Ég fer í fríið. Ég fer í fríið. Ég fer í fríið. Ég fer í fríið.