Heill þer faðir alheimsins seg þú mér Vorum við ekki fædd þér til dýrðar? Eða sáu forfeður mínir ekki að sér? Ekkert svar, ekkert hljóð bara blóð Og eftirköstin frá Híróshima. Hættan eykst með hverri mínútu. Dauðinn fer á stjá Klofvega situr hann á atómbombu, Hún fer ekki á framhjá Keflavík, Grindavík, Vogar Reykjavík, Þorlákshöfn loga. Feður og mæður Börn ykkar munu stikna Það er stutt í það að storknað hraun Muni renna á ný Það er stutt í það að jöklar okkar Muni breytast í gufuský Hvert barn sem fæðist í dag á minni og minni möguleika að lifa Hver þrítugur maður í dag Er með falsaðan miða. Þið munið öll, þið munið öll, þið munið öll deyja Þið munið öll, þið munið öll, þið munið öll deyja Þið munið stikna, þið munið brenna Þið munið stikna, þið munið brenna Feður og mæður börn ykkar munu stikna Dauðinn situr á atómbombu Hún fer ekki framhjá