Kishore Kumar Hits

Bubbi Morthens - Silfraður bogi lyrics

Artist: Bubbi Morthens

album: Sól rís 1980–2020


Í regninu elskendur finnurðu falda
Fallandi regnið mun yfir þau tjalda.
Hjörtun þau titra, hjörtun þau loga
Hjörtun sér fórna undir silfruðum boga.
Við þig ég tala meðan tunglið syndir
Tekur þín augu sýnir þér myndir.
Lífinu myndi ég vissulega voga
í von um koss undir silfruðum boga.
Eins og hermaður sem finnur að feigðin syngur
Að fljúgandi kúlan er hans giftingarhringur.
Þá finn ég í brjóstinu bálið loga
Bíddu mín í nótt undir silfruðum boga.
Dagarnir mínir daufir líða
Daprir eftir ástinni þurfum að bíða.
Í hjarta mitt sem hamast toga
Húmblá augu undir silfruðum boga.
Ef í regninu elskendur finnurðu farna
Felldu ekki dóminn, allavega ekki þarna.
Ef þú aðeins heldur við hjartans loga
Mun hamingjan bíða undir silfruðum boga.
Ástin undir silfruðum boga bíður
Að bros þitt vakni því tíminn líður.
Ef regninu kaldar göturnar gengur
Gakktu undir bogann og dveldu þar lengur.

Поcмотреть все песни артиста

Other albums by the artist

Similar artists