Kishore Kumar Hits

Bubbi Morthens - Með þér lyrics

Artist: Bubbi Morthens

album: Sól rís 1980–2020


Sérðu ekki við fæddumst til að standa hlið við hlið
Og halda út á veginn saman og líta aldrei við.
Með þér vil ég verða gamall og ganga lífsins veg
Með þér er líf mitt ríkara - með þér er ég bara ég.
Menn segja ég sé breyttur og syngi um börnin og þig
ég syng um það sem skiptir máli aðeins fyrir mig.
Eitt mátt þú vita - ég elska þig meira en lífið sjálft
ég trúi án þín mitt líf væri hvorki heilt né hálft
Með þér er vorið yndislegt
Og sumarið dýrðin ein.
Með þér er haustið göngutúr
Og ævintýri undir stein.
Með þér er veturinn kertaljós
Koss og stök rós.
Sérðu ekki við fæddumst til að standa hlið við hlið
Og halda út á veginn saman og líta aldrei við.
Með þér vil ég verða gamall og ganga lífsins veg
Með þér er líf mitt ríkara - með þér er ég bara ég.
Með þér er vorið yndislegt
Og sumarið dýrðin ein.
Með þér er haustið göngutúr
Og ævintýri undir stein.
Með þér er veturinn kertaljós
Koss og stök rós.
Með þér er vorið yndislegt
Og sumarið dýrðin ein.
Með þér er haustið göngutúr
Og ævintýri undir stein.
Með þér er veturinn kertaljós
Koss og stök rós.
Með þér er veturinn kertaljós
Koss og stök rós.

Поcмотреть все песни артиста

Other albums by the artist

Similar artists