Varir þínar mjúkar, sætar, svo heitur koss Orð úr blómum, um hálsinn gullinn kross Ef ég segði ég finn ekki til þá er það ekki satt Ég faldi það bak við grímuna, lét það lyggja kjurrt ég hefði betur ástin mín spurt. Eins og dagur og nótt verða ávalt aðskilin Eins og sól og máni þannig erum við vinur minn Tvær einmanna stjörnur sem hittust eitt augnablik Skynum skært á himni, áttum ljúfan fund Ljós svo skært sem skein, stutta stund. Þín fallegu augu, fylgja mér. Fallega þú í hjarta mér Fallega þú í hjarta mér. Eins og frost og funi þannig vorum við tvö Eins og þrír plús þrír þar sem útkoman var sjö. Þinn heiti faðmur, þínar mjúku varir, sama hvað við vildum Fengum engu um ráðið, gátum engu breytt Um tíma slóu hjörtu okkar sem eitt. Þín fallegu augu fylgja mér Fallega þú í hjarta mér Fallega þú í hjarta mér.