Kishore Kumar Hits

Misþyrming - Aftaka lyrics

Artist: Misþyrming

album: Með hamri


LÁGKÚRA! Hyski og uppreisnarseggir
- Fari þeir bölvaðir til heljar!
Þeir hafna vorum boðum og gildum;
Hinu heilaga kalli!
Skömm skal yfir þá hella
Fyrir last og svívirðilegan mótþróa!
Svívirðilegan mótþróa;
Ófyrirgefanlega glæpi!
Bárur þeirra vatna sem óhreinar skella á
Mót fljóti hins rétta, æðsta sannleiks.
Saurugir eru hættir þeirra:
Óháttvísir eru siðir þeirra:
Og því eru ósiðlegir hugar þeirra!
Fari þeir bölvaðir til heljar!
Við erum blóðþyrst, okkur skal ekki ógna.
Hver sem í okkar vegi dirfist að standa
Mun svo gjöra sem sitt hinsta verk.
Sviptum þá öllum orðum:
Skulu þau verða til einskis fyrst.
Slítum úr þeim þeirra tungu,
útrýmum eitraða boðskap þeirra!
Við fyrirgefum ekki!
Við drepum þá alla!
Aftan að þeim læðumst,
Hýðum þá og hæðumst,
Bindum þá með ólum,
Hengjum þá á hólum,
Brennum þá á haugum,
Fyrir allra manna augum!
Aska óvina okkar skal þyrlast um öll opin höf
Og alla heimsins okkar óravíðu himna...
Við fyrirgefum ekki!
Við drepum þá alla!
Svartir eldar hinnar sönnu geðshræringar
Brenna sem bylmandi öldur hafsins og stormar himnanna...
Fari þeir bölvaðir til heljar!

Поcмотреть все песни артиста

Other albums by the artist

Similar artists