Þú ætlar kannski að stikla á stóru og fara greitt, Horfir ekki aftur, Enda hræðistu ekki neitt. En ef þér skrikar fótur Er sárara að falla við En ef þú hefðir hægt á þér Og skoðað betur malbikið. Taktu stutt skref, Vertu ekki að flýta þér. Það liggur lítið á Svo taktu stutt skref Og sjáðu bara hvernig fer. Taktu stutt skref, Vertu ekki að flýta þér. Það liggur ekkert á Svo taktu stutt skref Og farðu ekki framúr þér. Eitt er að vita, Annað að hafa séð, Dregið að sér andann Og slegið taktinn með. Hjáleiðin er tímafrek En það er breitt bil á milli þess að lifa Og þess að vera bara til.