Ó hve ég er orðinn einn En fel það fyrir þér. Hljótt harm minn ber. Veit hvað gerir mér gott en illa get Hætt við götunnar seið. Eyk mína neyð. Ég reika af stað en þungt er skref því sprottið upp hefur borg. Með mannlaus torg. Sem birgir mér sýn og heftir för Húsin hratt fjölga sér. Ég fastur er. Ef ég gæti komist út til þín Yfir borgina Og fundið leið. Til að komast aftur heim til þín í gegnum borgina ég brýt mér leið. Reyni að elta þann veg sem vinsæll er En flljótt hann leikur mig grátt. Ég tapa átt. Ó hve ég er orðinn einn Vildi ég væri með þér. Nú harm minn kveð. Ef ég gæti komist út til þín Yfir borgina Og fundið leið. Til að komast aftur heim til þín í gegnum borgina ég brýt mér leið. Ef ég gæti komist heim til þín Yfir borgina...