Líf mitt endurkastast Í fallegum, taktföstum ryþma Við hjartslátt alheimsins Í ógnarstóru tónverki hans Sé ég sjálfan mig Ljóslifandi... Hverfandi... Ég lít upp til himins Sem er ekki aðskilinn mér... Við erum eitt Ein heild... Fornum, fjarlægum stjörnuþokum Ég sameinast... Í frjálsu falli Ég sundrast... Er hold mitt verður að ryki ...og hjarta mitt slær hraðar, og hraðar Í takt við - gang himintunglanna