Ég berst á fáki fráum Fram um veg. Mót fjallahlíðum háum Hleypi ég.;; Og golan kyssir kinn.;; Og á harða, harða spretti Hendist áfram klárinn minn. Það er sem fjöllin fljúgi Móti mér, Sem kólfur loftið kljúfi Klárinn fer,;; og lund mín er svo létt,;; Eins og gæti ég gjörvallt lífið Geisað fram í einum sprett. Hve fjör í æðar færist Fáknum með. Hve hjartað léttar hrærist. Hlær við geð;; að finna fjörtök stinn.;; Þú ert mesti gæðagammur, Góði Léttir, klárinn minn. Hve hátt hann lyftir makka Hvessir brá og Hringar hreykinn makka Horfið á.;; Sjá faxið flaksast til.;; Undir mundi syngur söngva Slétt við Léttis hófaspil. En lægðu sprettinn Léttir Líttu á, Við eigum brekku eftir Hún er há.;; Nú æjum við fyrst ögn.;; Áður söng og hófa hljómi Förum rjúfa fjallaþögn.Ég berst á fáki fráum Fram um veg. Mót fjallahlíðum háum Hleypi ég.;; Og golan kyssir kinn.;; Og á harða, harða spretti Hendist áfram klárinn minn. Það er sem fjöllin fljúgi Móti mér, Sem kólfur loftið kljúfi Klárinn fer,;; og lund mín er svo létt,;; Eins og gæti ég gjörvallt lífið Geisað fram í einum sprett. Hve fjör í æðar færist Fáknum með. Hve hjartað léttar hrærist. Hlær við geð;; að finna fjörtök stinn.;; Þú ert mesti gæðagammur, Góði Léttir, klárinn minn. Hve hátt hann lyftir makka Hvessir brá og Hringar hreykinn makka Horfið á.;; Sjá faxið flaksast til.;; Undir mundi syngur söngva Slétt við Léttis hófaspil. En lægðu sprettinn Léttir Líttu á, Við eigum brekku eftir Hún er há.;; Nú æjum við fyrst ögn.;; Áður söng og hófa hljómi Förum rjúfa fjallaþögn.