Kishore Kumar Hits

Sign - Innri Skugginn lyrics

Artist: Sign

album: Fyrir Ofan Himininn


Á tíma þegar allt
Er flogið, orðið svart
Þá hugsa ég um allt sem gæti gerst
Ef tíminn mundi stöðvast
Og allt liggur niður
Þá bið ég og vona að eitthvað gerist
En alltaf þegar ég er hér
Loka augunum
Og sé allt hverfa
Hverfa hægt í burtu frá mér
Og finn ég skuggann innra með
Og finn ég örlögin
Hvísla að mér fljúgðu hátt
Og vektu himininn
Alltaf að leita
En ég finn enga von
Loka á allt sem er framundan
Alltaf á flótta frá því
Sem ég þekki ekki
Opin augu
Sjá of mikið fyrir einn
Og ég hætti að finna fyrir mér
Og heimurinn byrjar að snúast
Í hringi í kringum mig
Og fallið kallar á mig
Og fallið kemur nær
Þá bíð ég að koma á móti mér
En alltaf þegar ég er hér
Loka augunum
Og sé allt hverfa
Hverfa hægt í burtu frá mér
Og finn ég skuggann innra með
Og finn ég örlögin
Hvísla að mér fljúgðu hátt
Og vektu himininn
Alltaf að leita
En ég finn enga von
Loka á allt sem er framundan
Reyni að breyta því
Sem ég þekki ekki
Því opin augu
Sjá of mikið
Svartafjöður, liftu mér upp
Og leyfðu mér að sjá
Hvað verður um mig að lokum?
Vængbrotin fell ég niður á jörðina
Og á endanum stend ég einn eftir

Поcмотреть все песни артиста

Other albums by the artist

Similar artists